SKÁLDSAGA

Haralds saga harðráða

Haralds saga harðráða er ein af Noregskonungasögum Snorra Sturlusonar úr Heimskringlu. Er sagan að margra mati ein áhugaverðasta sagan í þeim sagnasjóði ásamt með Ólafs sögu helga, enda ævi Haralds ævintýri líkust og yrði jafnvel talin ótrúverðug ef gefin væri út sem skáldsaga. 

Þrátt fyrir  að Haraldur hafi aldrei til Íslands komið að því er menn  vita, eru til margir þættir sem fjalla um Íslendinga við hirð hans og samkvæmt þeim urðu nokkrir þeirra all nánir honum um tíma, svo sem Halldór Snorrason (goða) sem var með honum í Miklagarði og Stúfur hinn blindi skáld sem var sonarsonur Guðrúnar Ósvífursdóttur.  Þá mun Gissur Ísleifsson hafi dvalið við hirð hans áður en hann varð biskup yfir Íslandi.  Sagan segir líka að Haraldur hafi komið Íslendingum til hjálpar þegar hallæri gekk yfir landið.

Sagan sem telur alls 101 kafla hefst við lok Stiklastaðaorustu þar sem Haraldur barðist í liði frænda síns Ólafs helga Haraldssonar.  Þaðan liggur leiðin til Garðaríkis og áfram til Miklagarðs þar sem Haraldur var landvarnamaður keisarans.  Sögunni lýkur svo á Englandi þegar Haraldur seilist þar til valda og fellur í orrustu við Harald Guðinason.  Sagan er listilega skrifuð og skemmtileg í alla staði og ætti ekkert áhugafólk um Íslendingasögurnar að láta hana framhjá sér fara.   


HÖFUNDUR:
Snorri Sturluson
ÚTGEFIÐ:
2011
BLAÐSÍÐUR:
bls. 162

AÐrar bÆkur
SEM ER VERT AÐ SKOÐA :